Hver veisla er einstök
Glæsilegir veislusalir Radisson Blu Hótel Sögu hæfa hvaða tilefni sem er; hvort heldur um er að ræða árshátíð, brúðkaup, útskrift, afmæli eða erfidrykkju - svo eitthvað sé nefnt. Veitingarnar eru eins og þær verða bestar - útbúnar af matreiðslumeisturum okkar í samráði við gestgjafa.
Njótið stundarinnar og látið fagfólki okkar eftir að sjá um amstrið. Okkar hlutverk er að sjá til þess að hver veisla sé einstök. Verið gestir í eigin veislu.
Allt sem þarf er eitt símtal til okkar og við finnum út hvað hentar hverju sinni.